Vinnumarkaður - 

24. október 2016

Munu börnin þekkja kynbundinn launamun?

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Munu börnin þekkja kynbundinn launamun?

Samtök atvinnulífsins vekja athygli á því í dag, 24. október, að fyrirtæki sem mismuna fólki í launum eftir kynferði brjóta lög, sóa verðmætum og standa sig verr í samkeppni á markaði. „Það er mikilvægt að stjórnendur haldi vöku sinni og mismuni ekki starfsfólki af gáleysi heldur nýti krafta allra jafnt,“ segir í auglýsingum samtakanna sem birtust í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu.

Þar segir ennfremur:

„Kynbundinn launamunur á sér margar ástæður og verður ekki upprættur með lögum eða reglugerðum. Viðhorfsbreytingar er þörf á fjölmörgum sviðum. Karlar og konur þurfa að bera jafna ábyrgð á heimilinu. Foreldrar, skólakerfið og samfélagið allt þarf að stuðla að breytingum á náms- og starfsvali ungmenna til að brjóta upp kynskiptan íslenskan vinnumarkað.

Stjórnendur og starfsfólk geta lagt sitt af mörkum til þess að börnin okkar þekki ekki hugtakið kynbundinn launamun þegar þau koma út á vinnumarkaðinn.“

Samtök atvinnulífsins hvetja alla sem hlut eiga að máli til að vinna saman að því að vinna gegn kynbundnum launamun. SA hafa t.d. tekið þátt í gerð jafnlaunastaðals en markmið jafnlaunastaðalsins er að auka gagnsæi og gæði í launaákvörðunum og auðvelda atvinnurekendum að viðhalda launajafnrétti kynja á vinnustað sínum. 

Félags- og húsnæðismálaráðherra opnaði í dag vefsíðu jafnlaunastaðalsins þar sem má kynnast verkefninu frekar. Jafnlaunastaðallinn er afurð áralangs samstarfs heildarsamtaka launafólks, atvinnurekenda og stjórnvalda. Staðallinn er byggður upp eins og alþjóðlegir stjórnunarstaðlar og fyrirtæki og stofnanir sem vilja nýta hann þurfa að uppfylla kröfur staðalsins og hljóta sérstaka vottun geri þau það.

Vefur jafnlaunastaðalsins

undefined

Auglýsingar SA:

Mun hann þekkja kynbundinn launamun"https://cdn.nfp.is/sa/gamaltefni/2410a.pdf" title="2410A.pdf">Mun hún þekkja kynbundinn launamun