Efnahagsmál - 

27. nóvember 2008

Mun stórskaða viðskiptalífið

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Mun stórskaða viðskiptalífið

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur að frumvarp um breytingar á lögum um gjaldeyrismál muni stórskaða íslenskt viðskiptalíf. Hann fer fram á að frumvarpið verið dregið til baka hið snarasta, en samkvæmt því er Seðlabankanum gert kleift með tímabundnum takmörkunum á gjaldeyrisviðskipti að hindra fjármagnsflótta úr landi. Þetta kemur fram í frétt á mbl.is.

Í fréttinni segir ennfremur: 

"Ég legg eindregið til að þetta frumvarp verði dregið til baka hið snarasta," segir Vilhjálmur. "Þetta er þvílíkt skref aftur á bak og gengur þvert á það sem talað er um í bréfi ríkisstjórnarinnar til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þar sem hún skuldbatt sig til þess að leggja ekki frekari höft á gjaldeyrisviðskipti, né koma á fjölgengisfyrirkomulagi. Með þessu frumvarpi sem verið er að leggja fram er verið að framlengja í þessum gjaldeyrishöftum og gera þau víðtækari. Þetta þýðir að það verður mun torveldara að hækka gengi krónunnar en annars, því menn munu hafa ennþá minna traust á íslensku viðskiptaumhverfi," segir Vilhjálmur og heldur áfram.

"Innflytjendur munu mjög fljótt fara í það far sem var hér áður, þegar menn voru með umboðslaun og alls kyns viðskipti með vörur og þjónustu fram og til baka erlendis áður en varan og þjónustan var tekin inn í landið. Í þeim viðskiptum urðu til eignir erlendis. Útflytjendur sem það vilja munu í gegnum greiðslufresti og umboðsfyrirtæki hafa algjöra stjórn á því hvað þau koma með inn í landið og allt þetta mun stórkostlega skaða íslenskt viðskiptalíf."

Sjá frétt mbl.is

Samtök atvinnulífsins