Efnahagsmál - 

20. maí 2010

Mörg fyrirtæki í vanda vegna erlendra lána

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Mörg fyrirtæki í vanda vegna erlendra lána

Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsis, í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í kjölfar frétta um að BM Vallá var úrskurðað gjaldþrota í byrjun vikunnar eftir áratuga farsælan rekstur. Vilhjálmur segir afar dapurlegt að svona hafi farið fyrir fyrirtækinu sem hafi verið rekið af miklum metnaði í gegnum tíðina. Vilhjálmur segir að samkvæmt upplýsingum frá bönkunum muni hópur fyrirtækja fara í þrot vegna kreppunnar en framundan sé heilmikil endurskipulagning í atvinnulífinu sem ljúki vonandi að mestu á næstu 12 mánuðum. Vilhjálmur segir stöðu fyrirtækja vera mismunandi en erlend lán valdi mörgum þeirra vandræðum.

 "Sum fyrirtæki voru nýbúin að fjárfesta mikið og voru skuldsett út af því, önnur fyrirtæki voru hóflega skuldsett en með lánin í erlendum gjaldmiðlum og það hefur þess vegna komið niður á þeim. En svo eru að sjálfsögðu til fyrirtæki sem eru skuldlítil og munu komast í gegnum kreppuna."

Vilhjálmur segir eðlilegt að íslensk fyrirtæki hafi tekið erlend lán þar sem vaxtamunur á milli lána í krónum og erlendra lána hafi verið svo mikill. Enginn sem hafi tekið erlend lán á sínum tíma reiknað með því í sínum villtustu útreikningum að gengi krónunnar myndi falla eins mikið og það gerði með alvarlegum afleiðingum.

Varðandi endurskipulagingu fyrirtækja segir Vilhjálmur að hafa verði í huga hvort rekstur þeirra er lífvænlegur og skili tekjum upp í skuldir. Spyrja verði hvort hagstætt sé að setja slík fyrirtæki í þrot.  "Við þurfum að átta okkur á því að gjaldþrot hefur í för með sér mikið verðmætatap kröfuhafa,  sérstaklega ef eignir fara á brunaútsölu." Vilhjálmur undirstrikar jafnframt að ef eignir fyrirtækja eru seldar með miklum afföllum raski það samkeppnisstöðu þeirra sem haldi áfram rekstri á sama markaði.

Sjá nánar:

Smellið hér til að hlusta á viðtalið við Vilhjálm á Bylgjunni 18. maí 2010.

Samtök atvinnulífsins