Efnahagsmál - 

05. nóvember 2008

Mikilvægt að hugsa hlutina upp á nýtt

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Mikilvægt að hugsa hlutina upp á nýtt

Kreppa er móðir tækifæra og nýsköpunar - því í kreppu gefst færi á að hugsa hlutina upp á nýtt og beita skapandi hugsun. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins og hvetur til þess að ríkisstjórn Íslands tileinki árið 2009 skapandi hugsun og nýsköpun. "Borgarstjórn Reykjavíkur er þegar búin að hugsa út fyrir rammann. Þar hefur ný kynslóð vikið leiðindakarpi til hliðar og tekið upp náið samstarf á erfiðum tímum þvert á flokkslínur. Hvað með að gera það að reglu í stað þeirrar þrætulistar sem stunduð var í borgarstjórn um áratugaskeið? Þingið þyrfti sannarlega á sömu hugarfarsbreytingu að halda þannig að uppgjör þings í þinglok snúist ekki alltaf um hver talaði mest," segir Þór.

Formaður SA bendir á að þrátt fyrir erfiða tíma og mögulega aukna ríkisforsjá verði að varast að öll svör við atvinnuleysi verði að finna hjá stjórnmálamönnum, að ein eða fáar  atvinnugreinar verði allsherjar lausn á vanda íslensks atvinnulífs. "Það er ekki hagur neins að einhæfni ríki í atvinnumálum hérlendis. Við erum búin að reyna það og árangurinn var misjafn. Á tímum hafta og ríkisforsjár voru atvinnugreinar valdar út eftir því hvað stjórnvöldum hugnaðist. Þegar frelsi var aukið og dyr opnaðar breyttist þetta. Nú eigum við öflug fyrirtæki á fjölmörgum sviðum sem mynda nýjar og fjölbreyttar stoðir undir íslenskt atvinnulíf."

Þór hvetur til þess að tækifærin verði nýtt og fjölbreytni aukin í íslensku atvinnulífi. "Við erum búin að fjárfesta í fjölbreyttum skólum og menntun fólks. Látum nú reyna á hæfileika þess og styðjum við bakið á þeim sem vilja skapa hér fjölbreytta flóru fyrirtækja og nýsköpunar. Væri ekki ráð að ríkisstjórn Íslands tileinki árið 2009 skapandi hugsun og nýsköpun?"

Samtök atvinnulífsins