Menntamál - 

10. desember 2018

Menntaverðlaun atvinnulífsins 2019

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Menntaverðlaun atvinnulífsins 2019

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu fimmtudaginn 14. febrúar 2019. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Tilnefningar sendist í tölvupósti til Samtaka atvinnulífsins á sa@sa.is, eigi síðar en þriðjudaginn 18. desember.

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu fimmtudaginn 14. febrúar 2019. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Tilnefningar sendist í tölvupósti til Samtaka atvinnulífsins á sa@sa.is, eigi síðar en þriðjudaginn 18. desember.

Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.

Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:

  • að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins,
  • að stuðlað sé að markvissri menntun og fræðslu,
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt og
  • að hvatning sé til frekari þekkingaröflunar.

Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Vinsamlega skilið greinargerð, að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar.

Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins 14. febrúar 2019 en það verður í sjötta sinn sem dagurinn er haldinn. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Það verður forvitnilegt að sjá hvaða fyrirtæki bætast í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið verðlaunin til þessa. Iceland Travel er menntafyrirtæki ársins 2018 og Landsnet menntasproti ársins 2018 og hér fyrir neðan má sjá hvers vegna.

Tengt efni:

Menntadagur atvinnulífsins 2018 í Sjónvarpi atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins