Vinnumarkaður - 

19. nóvember 2012

LÍÚ frestar atkvæðagreiðslu um verkbann

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

LÍÚ frestar atkvæðagreiðslu um verkbann

Stjórn LÍÚ ákvað á fundi þann 16. nóvember að fresta atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um verkbann í kjaradeilu útvegsmenna og sjómanna. Viðræður hjá ríkissáttasemjara um nýjan kjarasamning hafa verið árangurslausar en þann 5. nóvember heimilaði stjórn SA LÍÚ að taka ákvörðun um verkbann sem nái til sjómanna sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum sambandsins. Stjórn SA getur veitt aðildarsamtökum sínum heimild til að boða verkbann (skv. samþykktum SA) en ákvörðun LÍÚ um verkbann byggir á atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna LÍU og samþykktum samtakanna.

Nánar er fjallað um ákvörðun stjórnar LÍÚ á vef samtakanna, en þar segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ m.a.:

 "Það er mjög afdrífaríkt skref að fara í verkbann. Á sama tíma og mikill efnahagssamdráttur er í mörgum viðskiptalöndum okkar fyrir sjávarafurðir er framboð frá helstu samkeppnisþjóðum okkar að aukast verulega. Staðan á mörkuðum er því óvenju viðkvæm um þessar mundir."

Adolf ítrekar að um frestun sé að ræða.

"Því miður kann verkbann að vera óumflýjanlegt síðar. Ekki verður komist hjá því að endurskoða tekjuskiptinguna á milli útvegsmanna og sjómanna og margföldun veiðigjaldsins er kornið sem fyllti mælinn," segir Adolf.

Útgerðarmenn og sjómenn deila kjörum í hlutaskiptakerfi þar sem laun og launatengd gjöld vegna sjómanna eru tæp 40% að meðaltali.

"Þegar samið er um hlutfallsskiptingu af 100 krónum og ríkið tekur 15 er ljóst að þeir sem eftir sitja þurfa að skipta 85 krónum en ekki 100. Hvaða fyrirtæki eða heimili sem er þyrfti að grípa til ráðstafana ef tekjur þeirra lækka skyndilega um 15% og það sama á við um útgerðarfyrirtæki," segir Adolf á vef LÍÚ.

Sjá umfjöllun á vef LÍÚ

Tengt efni:

Samtök atvinnulífsins styðja LÍU

Samtök atvinnulífsins