Efnahagsmál - 

05. mars 2002

Kaupmáttarrýrnun 2001 en hækkun á samningstíma

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Kaupmáttarrýrnun 2001 en hækkun á samningstíma

Samkvæmt launakönnun Kjararannsóknarnefndar (KRN) hækkuðu dagvinnulaun að meðaltali um 5,9% á tímabilinu frá 4. ársfjórðungi 2000 til 4. ársfjórðungs 2001. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 8,4%. Samkvæmt því rýrnaði kaupmáttur dagvinnulauna að meðaltali um 2,3% á tímabilinu. Launahækkun flestra starfsstétta var á bilinu 4,4% til 8,2%. Laun kvenna hækkuðu um 6,2% en karla um 5,8%. Laun á höfuðborgarsvæði hækkuðu um 7,0% en laun utan höfuðborgarsvæðis um 4,8%.

4% kaupmáttaraukning á samningstímanum
Samkvæmt mælingum KRN var kaupmáttur 4% hærri á 4. ársfjórðungi 2001 en á 1. ársfjórðungi 2000.  Hann hafði því hækkað að meðaltali um 4% á samningstímanum þegar þarna er komið sögu. 

Sjá nánar á heimasíðu KRN.

Samtök atvinnulífsins