Jafnréttisviðurkenning 2003: tilnefninga óskað (1)
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til
jafnréttisviður-kenningar fyrir árið 2003. Viðurkenningu geta
hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn
eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði
jafnréttismála. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 1. október
nk.
Sjá nánar á heimasíðu Jafnréttisráðs.