Vinnumarkaður - 

31. mars 2009

Jafnréttisráð gagnrýnir stjórnir Seðlabanka og Kaupþings

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Jafnréttisráð gagnrýnir stjórnir Seðlabanka og Kaupþings

Í nýlegri ályktun Jafnréttisráðs brýnir ráðið stjórnvöld til að halda vöku sinni. "Það er algjörlega á skjön við anda jafnréttislaga að í nýskipaðri stjórn Seðlabanka Íslands eru 5 karlar og 2 konur og í sérnefnd um endurskoðun stjórnarskrár eiga sæti 8 karlar og 1 kona," segir Jafnréttisráð. Í ályktuninni segir ennfremur: " Á sama hátt og með sömu rökum er gagnrýnisvert að ný stjórn Kaupþings skuli einungs vera skipuð konum."

Ályktunin í  heild má lesa hér að neðan:

Jafnréttisráð lýsir ánægju yfir stórum tíðindum á  sviði jafnréttismála.  Fyrst ber að  nefna nýsamþykkta aðgerðaáætlun gegn mansali sem ætti að nýtast sem kærkomið verkfæri í baráttunni gegn mansali.  Í áætluninni er gert ráð fyrir því að fyrirliggjandi frumvörp um bann á  kaupum á vændi og afnám undarþáguákvæðis á banni á nektarsýningum í lögum um skemmtistaði nr. 85/2007 verði  samþykkt. Jafnréttisráð treystir þeim orðum  félagsmálaráðherra að frumvörpin verði afgreidd  á yfirstandandi þingi og skorar á alla þingmenn að samþykkja frumvörpin. 

Önnur stórtíðindi er stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar um kynjaða hagstjórn, sem felst í því að kynjasjónarmið skuli vera  eitt af leiðarljósunum við hvers kyns hagstjórn og fjárlagagerð.  Kynjuð hagstjórn er  sérlega mikilvæg á tímum mikilla þjóðfélagsbreytinga og óvissu til þess að tryggja jafnrétti í raun.

Enn annað nýmæli sem fagna ber er Jafnréttisvaktin sem ætlað er að fylgjast með áhrifum efnahagsástandsins á stöðu kynjanna, safna upplýsingum frá öðrum  þjóðum með svipaða reynslu og vera til ráðgjafar um skipulagningu aðgerða og áætlana vegna afleiðinga  efnahagsástandsins. 

Jafnréttisráð vill þó brýna stjórnvöld um að halda ætíð vöku sinni.  Það er algjörlega á skjön við anda jafnréttislaga að í nýskipaðri stjórn Seðlabanka Íslands eru 5 karlar og 2 konur og í  sérnefnd um endurskoðun stjórnarskrár eiga  sæti  8 karlar og 1 kona. Báðar nefndirnar gegna veigamiklum hlutverkum fyrir íslenskt samfélag.  Á sama hátt og með sömu rökum er gagnrýnisvert að ný stjórn Kaupþings skuli einungis vera skipuð konum. Það má aldrei gleymast að  við búum í kynjuðu samfélagi og til þess ber  að taka tillit við allar  ákvarðanatökur.

Samþykkt í mars 2009

Fyrir hönd Jafnréttisráðs

Hildur Jónsdóttir formaður  

Samtök atvinnulífsins