Fréttir - 

20. febrúar 2018

Illa sviknir stjórnendur

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Illa sviknir stjórnendur

Svonefnd stjórnendasvik (e. CEO-fraud) hafa upp á síðkastið orðið æ algengari. Þau felast í að fjársvikamenn villa á sér heimildir sem stjórnendur fyrirtækja og senda trúverðug fyrirmæli á starfsmenn þeirra um að millifæra fé með hraði.

Ísland er eitt netvæddasta land heims og hér á landi eru nánast öll bankaviðskipti rafræn. Íslensk fyrirtæki hafa því orðið fyrir barðinu á stjórnendasvikum í síauknum mæli á undanförnum árum. Þeirri gerð tölvuglæpa er ekki unnt að verjast með tæknilausnum, heldur þarf forvarnir og árverkni til.

Af því tilefni efna Samtök atvinnulífsins (SA) og Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) morgunfundar um forvarnir gegn stjórnendasvindli og tölvuglæpum, föstudaginn 23. febrúar, á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fundurinn hefst kl. 8.30 og stendur til 10.00.

Þar munu Hákon Åkerlund og Guðmundur Örn Ingvarsson, öryggissérfræðingar Landsbankans, fjalla um einkenni slíkra glæpa og viðbrögð við þeim.

Fundinum verður jafnframt streymt á Facebook-síðum SA og SFF.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan ef þú ætlar að sækja fundinn í Húsi atvinnulífsins, sætafjöldi er takmarkaður en útsendingin öllum opin.

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins