24. nóvember 2025

Í beinni: Umhverfisdagur atvinnulífsins 2025

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Í beinni: Umhverfisdagur atvinnulífsins 2025

Umhverfisdagur atvinnulífsins er haldinn á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl. 9.00.

Yfirskrift Umhverfisdags atvinnulífsins 2025 er Frá yfirlýsingum til árangurs. Dagskráin skiptist í tvær lotur.

Fyrri lotan tekur á gagnsæi sem forsendu trúverðugleika. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og forstöðumaður efnahagssvið samtakanna flytur erindi sem ber yfirskriftina Á ég að gera það? Í pallborði í fyrri lotu sitja fyrir svörum Daði Már Kristórfersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafultrúi Samorku, stjórnar umræðum. Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara og Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, eru með innlegg frá sínu sjónarhorni.

Síðari lotan fjallar um samkeppnishæfni Íslands í ljósi umhverfisstefnu ESB. Þar flytur erindi Ágústa Ýr Þorbergsdóttir, meðeigandi KREAB. Í pallborði sitja Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Finnur Sveinsson, viðskipta- og deildarstjóri sjálfbærni hjá HS-orku, Vigdís Diljá Óskardóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli, Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips. Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku stjórnar pallborði. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags- og sjálfbærni hjá Landsvirkjun, Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, eru með innlegg.

Síðast á dagskrá en ekki síst er afhending Umhverfisverðlauna atvinnulífsins. Veitt verða verðlaun fyrir umhverfisfyrirtæki ársins, umhverfisátak ársins auk þess sem veittar verðar tvær viðurkenningar.

Umhverfisdagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.

Samtök atvinnulífsins