Efnahagsmál - 

16. apríl 2009

Hver prósenta í hagvexti skapar 800-900 störf

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hver prósenta í hagvexti skapar 800-900 störf

Á síðustu 45 árum, frá 1963-2008, jókst landsframleiðsla að jafnaði um 3,9% á ári og störfum fjölgaði um 2,0%. Hverri prósentu í hagvexti fylgdi þannig fjölgun starfa um hálft prósent. Ef þetta samband verður í gildi áfram á næstu árum þarf landsframleiðslan að vaxa um tæpan fjórðung fram til ársins 2015 til þess að fjölgun starfa um 20.000 verði að veruleika. Að því gefnu að landsframleiðslan minnki um 10% á þessu ári og að enginn hagvöxtur verði á næsta ári þá þarf hagvöxtur að vera 4,5% árlega að jafnaði á árunum 2011-2015 svo þetta markmið náist. Full atvinna næst ekki með öðrum hætti að því gefnu að jafnvægi verði í búferlaflutningum til og frá landinu á komandi árum.

Ársstörfum fjölgaði um 90% á tímabilinu 1963 til 1997 eða um rúmlega 2% á ári að jafnaði. Á sama tímabili var hagvöxtur að jafnaði 4% árlega þannig að hver prósenta í hagvexti skapaði grundvöll fyrir 0,5% fjölgun starfa. Hinn mikli hagvöxtur skapaði grundvöll bæði fyrir mikill fjölgun starfa umfram fólksfjölgun og stórbættum lífskjörum.

Starfandi fólki fjölgaði einnig um rúm 2% á ári að jafnaði á tímabilinu 1997 til 2008 og hagvöxtur var rúmlega 4% árlega þannig að einnig á þessu tímabili fylgdi hverri prósentu í hagvexti 0,5% fjölgun starfa. Fækkun starfa á þessu ári er þó mun meiri en fall landsframleiðslu gefur tilefni til samkvæmt þessu sambandi. Það skýrist að miklu leyti af þeim óvenjulegu aðstæðum sem ríkjandi eru í kjölfar bankahrunsins og mikilli fækkun starfa í byggingariðnaði í kjölfar ofþenslunnar á þeim markaði á undanförnum árum.

Sambandið milli hagvaxtar og þróunar starfa

Smellið á myndina til að stækka

Samtök atvinnulífsins