Samkeppnishæfni - 

25. nóvember 2019

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2019 afhent á miðvikudaginn

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2019 afhent á miðvikudaginn

Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent miðvikudaginn 27. nóvember á morgunfundi um jafnréttismál í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 8.30-10. Allir eru velkomnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA. Sagafilm hlaut verðlaunin árið 2018 og verður spennandi að sjá hver hlýtur þau í ár.

DAGSKRÁ

Jafnrétti finnst í menningu fyrirtækja
Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm sem hlaut Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2018

Til fyrirmyndar í fluginu!
Ásdís Ýr Pétursdóttir forstöðumaður samfélagsábyrgðar og samskipta Icelandair

Valdaójafnvægi á vinnumarkaði: Fleytir ást kvenna körlum áfram í atvinnulífinu?
Ólöf Júlíusdóttir, doktor í félagsfræði frá Háskóla Íslands

Hvatningarverðlaun jafnréttismála
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar, afhendir verðlaunin

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands stýrir fundi

Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins,  Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands en sérstakur samstarfsaðili verkefnisins er UN Women á Íslandi.

Morgunkaffi og með því frá kl. 8.10.

SKRÁNING

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins