1 MIN
Horfðu á Menntadag atvinnulífsins í streymi
Göngum í takt
Menntadagur atvinnulífsins er haldinn hátíðlegur í dag. Yfirskrift menntadagsins í ár er Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins?
Á fundinum, sem hefst kl. 09:00, kynna Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök uppfærðar niðurstöður könnunar Gallup á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar í því augnamiði að skilgreina nauðsynlegar aðgerðir svo vinnuaflsskortur hamli ekki vexti í atvinnulífinu. Rödd atvinnulífsins fær að heyrast sem fyrr og ráðherrar málaflokksins mæta í umræður þar sem menntakerfið er krufið með tilliti til færniþarfar á vinnumarkaði.
Þá eru hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt í tveimur flokkum af Forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku , Samtaka ferðaþjónustunnar , Samtaka fjármálafyrirtækja , Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi , Samtaka iðnaðarins , Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.
Hér má horfa á Menntadag atvinnulífsins í streymi: