Efnahagsmál - 

02. september 2008

Haldið verði áfram á sömu braut

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Haldið verði áfram á sömu braut

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist í samtali við Vísi.is ánægður með þær fréttir sem bárust af Alþingi í dag að ríkissjóður væri að ganga frá gjaldeyrisláni upp á rúma þrjátíu milljarða. Hann segir þetta mjög gott skref í rétta átt og nú sé brýnt að halda áfram á sömu braut. "Þetta er mjög jákvætt og um að gera að byrja einhvers staðar," segir Vilhjálmur og telur að styrkja eigi gjaldeyrisvarasjóðinn enn meira með frekari lántöku.

Vilhjálmur segir mikilvægt að ríkinu skuli hafa tekist að fá lán á eðlilegum kjörum en ekki þeim sem skuldatryggingaálag íslenska ríkisins gefi til kynna. "Það er bara mjög gott að þetta gekk eftir. Eftir því sem betur gengur að taka svona lána gerir það bönkunum auðveldara fyrir í sinni fjármögnun. Þetta er gott skref."

Sjá fréttina á Vísi.is

Samtök atvinnulífsins