Samkeppnishæfni - 

22. janúar 2006

Hægt að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar orku

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hægt að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar orku

Mikill meirihluti þjóðarinnar telur að hægt sé að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar vatns- og gufuafls. Einnig telur mikill meirihluti að ál- og raforkufyrirtæki á Íslandi standi vel að umhverfismálum. Þetta kemur fram í könnun sem IMG Gallup gerði að beiðni Samtaka atvinnulífsins í nóvember síðastliðnum.

Mikill meirihluti þjóðarinnar telur að hægt sé að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar vatns- og gufuafls. Einnig telur mikill meirihluti að ál- og raforkufyrirtæki á Íslandi standi vel að umhverfismálum. Þetta kemur fram í könnun sem IMG Gallup gerði að beiðni Samtaka atvinnulífsins í nóvember síðastliðnum.

Hægt að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar orku
Þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu hægt að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar vatns- og gufuafls. 88% svarenda töldu hægt að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar gufuafls og 70% töldu hægt að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar vatnsafls.

Ál- og raforkufyrirtæki standa sig vel í umhverfismálum
Þá voru þátttakendur spurðir hvort þeir teldu ál- og raforkufyrirtæki á Íslandi standa sig vel eða illa í umhverfismálum. 77% töldu raforkufyrirtæki standa sig vel í umhverfismálum, 13% illa og 10% voru hlutlaus eða svöruðu hvorki né. 72% töldu álfyrirtæki standa sig vel í umhverfismálum, 16% illa og 13% voru hlutlaus eða svöruðu hvorki né.

Nánar um spurningar og svör hér á eftir:

Telur þú að hægt sé að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar gufuafls?

Já 

88,3%

Nei

 11,7%



Telur þú að hægt sé að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkunar vatnsafls?

Já 

69,7%

Nei

 30,3%



Telur þú að raforkufyrirtæki á Íslandi standi vel eða illa að umhverfismálum?

Mjög vel

Frekar vel

Hvorki né / hlutlaus

Frekar illa

Mjög illa

26,3%

51,1%

 9,6%

9,6%

3,5%



Könnun jan mynd 1

Telur þú að álfyrirtæki á Íslandi standi vel eða illa að umhverfismálum"" style="WIDTH: 390px" cellspacing="0" cellpadding="1" width="390" align="center" border="0">

Mjög vel

Frekar vel

Hvorki né / hlutlaus

Frekar illa

Mjög illa

18,0%

53,5%

12,7%

11,2%

4,6%



Könnun jan mynd 2

Könnunin kynnt nánar á ráðstefnu 27. janúar
Alls var spurt tólf spurninga í könnuninni og mun Þóra Ásgeirsdóttir, forstöðumaður viðhorfsrannsókna hjá IMG Gallup, kynna niðurstöðurnar í heild á ráðstefnunni Orkulindin Ísland sem haldin verður á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar nk. Að ráðstefnunni standa Samorka, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, og þar verður fjallað um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá á vef SA. Í pallborðsumræðum þar sem rætt verður um stöðu og horfur taka þátt þau Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar, Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Norðuráli og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls.


Um könnunina
Könnunin var símakönnun IMG Gallup, framkvæmd á tímabilinu 16.-29. nóvember 2005. Endanlegt úrtak voru 1303, handahófsvalið af öllu landinu úr þjóðskrá. Fjöldi svarenda var 801, eða 61,5%.

Samtök atvinnulífsins