Vinnumarkaður - 

27. janúar 2006

Góð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Góð og vel launuð störf og mikill stöðugleiki í starfsmannahaldi er meðal þess sem Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, fjallaði um í erindi sínu á Orkulindinni Ísland - ráðstefnu SA, SI og Samorku um gildi ál- og orkuframleiðslu. Meðalstarfsaldur hjá Alcan er þannig með því lengsta sem gerist, eða yfir 15 ár í árslok 2005. Veltuhraði starsfsmanna þar er einnig með því lægsta sem þekkist, eða 3,5 - 4% í áliðnaði árið 2004. Í samanburði er meðaltalið meðal félagsmanna ASÍ yfir 30%. Gylfi sýndi einnig hvernig regluleg mánaðarlaun verkafólks og iðnaðarmanna í álverum eru mun hærri en meðaltalið meðal þessara hópa á landsvísu. Þá sagði Gylfi álver vissulega vera hættulega vinnustaði en sagði mikinn skilning og öryggisvitund til staðar meðal starfsmanna og stjórnenda þessara fyrirtækja, sem væru frumkvöðlar og í fararbroddi í öryggis- og aðbúnaðarmálum. Slysatíðni hefði þannig verið nokkur en farið mjög ört lækkandi og mjög lítið um alvarleg slys.

Sjá glærur Gylfa Arnbjörnssonar.

Samtök atvinnulífsins