27. ágúst 2022

Fyrirmyndarfyrirtækjum veitt verðlaun

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fyrirmyndarfyrirtækjum veitt verðlaun

16 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti

16 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum . Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn á Nauthóli 26. ágúst, að viðstöddum fulltrúum fyrirmyndarfyrirtækjanna. Samtök atvinnulífsins, Stjórnvísi, Viðskiptaráð og Nasdaq Iceland veita viðurkenningarnar.

Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.

Fyrirmyndarfyrirtæki í fjölbreyttri starfsemi

Fyrirmyndarfyrirtækin 16 eru í afar fjölbreyttri starfsemi en þar má nefna fjármála- og tryggingastarfsemi, fjarskipti, fjölmiðlarekstur og verkfræðiþjónustu. Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.

Eftirtalin fyrirtæki voru að þessu sinni útnefnd Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum:

  • Arion banki hf.
  • Eik fasteignafélag hf.
  • Íslandssjóðir hf.
  • Kvika banki hf.
  • Landsbankinn hf.
  • Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
  • Mannvit hf.
  • Reginn hf.
  • Reiknistofa bankanna hf.
  • Reitir hf.
  • Stefnir hf.
  • Sýn hf.
  • TM hf.
  • Vátryggingafélag Íslands hf.
  • Vörður hf.
  • Ölgerðin Egill Skallagríms hf.

Tilnefningarnefndir hafa aukið gegnsæi og áhuga

Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, flutti stutt erindi um hluthafalýðræði og tilnefningarnefndir. Í máli Magnúsar kom meðal annars fram að reynsla af tilnefningarnefndum, sem farið hefur ört fjölgandi á síðustu árum, sé almennt góð. Nefndirnar auki gegnsæi og fagleika auk þess sem framboðum til stjórnarsetu hafi almennt fjölgað með tilkomu þeirra, sem verði að teljast vel.

Þá fór Jón Gunnar Borgþórsson frá JGB ráðgjöf stuttlega yfir verkefnið Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum sem sett var á laggirnar fyrir rúmum áratug. Markmið verkefnisins er að stuðla að góðum stjórnarháttum með því að skýra hlutverk og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja og auðvelda þeim þannig að rækja störf sín. Liður í því er meðal annars útgáfa og regluleg uppfærsla leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem sjá má á www.leidbeiningar.is .

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, veitti viðurkenningarnar en fundarstjóri var Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Samtök atvinnulífsins