Efnahagsmál - 

30. september 2008

Framkvæmdastjórn SA fundar í Brussel

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Framkvæmdastjórn SA fundar í Brussel

Framkvæmdastjórn SA fundaði í dag með embættismönnum Evrópusambandsins á sviði samkeppnismála. Lýstu þeir áhyggjum af stöðu mála á alþjóðlegum fjármálamörkuðum en fram kom að á vettvangi ESB er nú verið að undirbúa breytingar á löggjöf sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir að núverandi kreppa endurtaki sig. Þær breytingar munu einkennast af hlutlægni, gegnsæi, jafnræði og auknu eftirliti með aðilum á fjármálamarkaði.

Framkvæmdastjórn SA fundaði einnig með sérfræðingum ESB á fjármálasviði um stöðuna á fjármálamörkuðum. Þar kom fram að ESB vinni að útfærslu hugmynda til að fást við yfirstandandi erfiðleika, einkum þegar um er að ræða fjármálafyrirtæki sem starfa í mörgum ríkjum.

Samtök atvinnulífsins