30. mars 2023

Framkvæmdastjóri SA lætur af störfum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Framkvæmdastjóri SA lætur af störfum

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), hefur ákveðið að láta af störfum hjá samtökunum en hann mun taka við nýju starfi á næstunni.

Halldór Benjamín Þorbergsson: „Það eru óneitanlega blendnar tilfinningar sem fylgja því að kveðja þennan vettvang, enda eru alger forréttindi að gegna starfi framkvæmdastjóra SA. Starfið hjá SA hefur verið mjög lærdómsríkt og skemmtilegt en það er á sama tíma engum hollt að vera í slíku starfi of lengi. Ég veit að ég skil við starf samtakanna í góðum höndum, hjá öflugum hópi starfsfólks og stjórnarmanna, sem ég hef verið svo lánsamur að eiga gott samstarf við á þeim tæpu 7 árum sem ég hef gegnt þessu starfi.“

Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA: „Það er mikill missir að Halldóri Benjamín úr stóli framkvæmdastjóra. Hann er mikill hæfileikamaður, eins og þau öll vita sem hann þekkja og það er því ekki óvænt að eftirspurn sé eftir hans starfskröftum víðar en hjá okkur. Okkar samstarf hefur frá upphafi verið afar náið og traust en við fórum í gegnum nokkrar stórar samningalotur á þeim tíma og Halldór átti stóran þátt í að ljúka nokkrum mjög mikilvægum kjarasamningum fyrir land og þjóð. Stjórn SA, framkvæmdastjórn og starfsfólk kveður hann með söknuði.“

Samtök atvinnulífsins