Efnahagsmál - 

15. október 2009

Fjölgum konum í forystu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fjölgum konum í forystu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins telja bæði nauðsynlegt og skynsamlegt að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs og hvetja því fyrirtæki til að nýta betur kraft kvenna. Nýleg íslensk rannsókn sýnir að fyrirtæki eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru rekin af konum og arðsemi eigin fjár er meiri í fyrirtækjum þar sem konur eru framkvæmdastjórar. Fyrirtæki sem stofnuð eru af báðum kynjum eru ennfremur líklegust til að lifa og blandaðar stjórnir karla og kvenna hafa reynst best. Á vef SA má nú finna lista yfir fjölmargar öflugar rekstrarkonur sem eru til í að láta frekar til sín taka í íslensku viðskiptalífi.

SA hafa skuldbundið sig til að leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að hlutfall kvenna í forystusveit íslensks atvinnulífs verði ekki undir 40% árið 2013. Síðastlið vor skrifuðu SA undir samstarfssamning við FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands um að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs. Fulltrúar stjórnmálaflokka á Alþingi styðja samninginn en CreditInfo mun mæla árangur verkefnisins árlega. 

Samstarfssamningurinn var undirritaður 15. maí 2009

Hér að neðan má nálgast lista yfir öflugar rekstarkonur ásamt hvatningarbréfi SA, FKA og Viðskiptaráðs sem sent hefur verið til fjölda aðila  í íslensku viðskiptalífiað undanförnu.

Sjá nánar:

Listi yfir rekstrarkonur

Smellið hér til að sækja rannsókn CreditInfo

Hvatningarbréf SA, FKA og Viðskiptaráðs

Samstarfssamningur SA, FKA og Viðskiptaráðs

Umfjöllun um undirskrift samningsins

Samtök atvinnulífsins