30. nóvember 2022

Fjölbreytileikinn í beinu streymi

Sjálfbærni

Jafnréttismál

Sjálfbærni

Jafnréttismál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fjölbreytileikinn í beinu streymi

Hvatningarverðlaun jafnréttismála afhent í dag

Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands halda morgunfund núna kl. 08:30 um jafnréttismál 2022 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Að loknum fróðlegum erindum verða Hvatningarverðlaun jafnréttismála afhent fyrir kynjajafnrétti og Jafnréttissprotinn vegna framtaks m.t.t. til fjölmenningar, fötlunar og annarra brýnna viðfangsefna jafnréttismála.

Markmiðið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja athygli á fyrirtækjum, sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til þess að gera slíkt hið sama. Stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja sem skapað hafa góða fyrirtækjamenningu þar sem jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika samfélagsins liggur til grundvallar voru hvattir til að senda inn tilnefningu.

Verðlaunin eru nú veitt í tíunda sinn, en árið 2021 voru það Vörður og Samkaup sem hlutu verðlaunin.

Fundurinn hefst kl. 08:30 og er í beinu streymi hér:

Dagskrá

Ath. Húsið opnar 8:00 með morgunhressingu

Ávarp
Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ

Ávarp
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA

Við töpum öll
Thelma Kristín Kvaran, stjórnendaráðgjafi og sérfræðingur í ráðningum

Nýsköpunarvirkni fatlaðs fólks
Stefan C. Hardonk, prófessor við HÍ

Jafnrétti fyrir öll – Samkaup alla leið
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs Samkaupa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, afhendir Hvatningarverðlaun jafnréttismála og Jafnréttissprotann.

Samtök atvinnulífsins