1 MIN
Fjárfestingar í atvinnulífinu lykillinn að endurreisninni
Stöðugleikasáttmálinn hangir nú saman á óskhyggjunni einni. Þetta sagði Vilmundur Jósefsson, formaður SA, á opnum fundi samtakanna um sáttmálann sem fram fór í morgun. Vilmundur sagði lítið hafa miðað í viðræðum aðila að undanförnu en þúsundir starfa væru í hættu vegna aðgerða og aðgerðarleysis stjórnvalda, m.a. skaðlegra skattaáforma. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, fór í ítarlegu máli yfir stöðu mála sem tengjast stöðugleikasáttmálanum og horfurnar framundan.

Kynningu Vilhjálms má nálgast hér að neðan en hann sagði m.a. nauðsynlegt að hleypa lífi í fjárfestingar innlendra og innlendra og erlendra aðila til að koma okkur út úr kreppunni. Án þeirra og með gjaldeyrishöftum og háu vaxtastigi skapist raunveruleg hætta á nýrri, enn dýpri kreppu þar sem landsframleiðsla dragist saman um a.m.k. 6% á næsta ári. Raunveruleg hætta væri á að SA yrðu knúin til þess að segja kjarasamningum upp vegna vanefnda ríkisstjórnarinnar á mikilvægum fyrirheitum í stöðugleikasáttmálanum, þótt SA væru ekki í neinum ágreiningi við ASÍ sem hafi sýnt atvinnulífinu mikinn skilning.