14. júní 2022

Félag pípulagningameistara gengur til liðs við SI og SA

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Félag pípulagningameistara gengur til liðs við SI og SA

Félag pípulagningameistara, FP, hefur gengið til liðs Samtök atvinnulífsins í gegnum aðild þeirra að Samtökum iðnaðarins, en samkomulag þess efnis var undirritað í Húsi atvinnulífsins þann 13. júní.

Með samkomlaginu verða allir félagsmenn Félags pípulagningameistara sem stunda atvinnurekstur félagsmenn í Samtökum iðnaðarins og þar með í Samtökum atvinnulífsins. Þannig bætast 140 nýir félagsmenn Félags pípulagningameistara í hóp öflugra og fjölbreyttra félagsmanna Samtaka atvinnulífsins. Inngöngu í Félag pípulagningameistara hafa þeir einir sem hafa meistararéttindi og löggildingu í pípulögnum.

Með inngöngu Félags pípulagningameistara verða í fyrsta sinn öll meistarafélög iðngreina í bygginga- og mannvirkjaiðnaði hér á landi innan vébanda Samtaka iðnaðarins og SA. En fyrir eru meistarafélög í blikksmíði, dúklögn- og veggfóðrun, innréttinga- og húsgagnasmíði, skrúðgarðyrkju, húsasmíði, málaraiðn, múraraiðn og rafverktöku.

Árni Sigurjónsson, formaður SI: „Við fögnum því að fá pípulagningameistara til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins. Þetta er stórt skref sem er stigið nú þegar allar iðngreinar sem tilheyra bygginga- og mannvirkjaiðnaði eru samankomnar undir hatti Samtaka iðnaðarins. Með þessu eflum við samtökin og rödd þessara mikilvægu atvinnugreina enn frekar.“

Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður FP : „ Félagsmenn okkar samþykktu aðild að Samtökum iðnaðarins í rafrænni kosningu og verðum við þar með þátttakendur í stærstu og öflugustu hagsmunasamtökum atvinnurekenda á Íslandi. Við eigum samleið með öðrum meisturum í bygginga- og mannvirkjagerð. Framundan er því spennandi samstarf en saman ætlum við að ráðast í mörg krefjandi verkefni.“

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA: ,,Það er okkur mikið gleðiefni að fá öflugt félag eins og Félag pípulagningameistara til liðs við Samtök atvinnulífsins. Við fögnum einnig þeim áfanga að nú tilheyri öll meistarafélög iðngreina í byggingar- og mannvirkjaiðnaði Samtökum iðnaðarins og teljum mikilvægt að nýta samtakamáttinn til að vinna að framgangi þessara mikilvægu greina.”

Samtök atvinnulífsins