Fréttir - 

27. október 2020

Enn opið fyrir tilnefningar til Hvatningarverðlauna jafnréttismála

Jafnréttismál

Jafnréttismál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Enn opið fyrir tilnefningar til Hvatningarverðlauna jafnréttismála

Frestur til að skila inn tilnefningu til Hvatningarverðlauna jafnréttismála er fyrir 1. nóvember næstkomandi. Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands. Markmiðið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja jákvæða athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.

Viðmið dómnefndar 2020

Leitað er eftir tilnefningum fyrirtækja sem leggja áherslu á neðangreinda þætti í sinni starfsemi:

  • Tekið er mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins.
  • Unnið hefur verið að því að skapa góða fyrirtækjamenningu þar sem jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika samfélagsins liggja til grundvallar
  • Horft er til jafnréttis í víðum skilningi, m.a. tækifæra innflytjenda, fatlaðs fólks og hinsegin fólks á vettvangi fyrirtækis.
  • Jöfn hlutföll kynja í stjórn, stjórnendastöðum og öðrum lykilstöðum.
  • Jöfnum möguleikum kynja til starfsframa, m.a. að starfsfólk af öllum kynjum sé hvatt til að nýta sér rétt sinn til fæðingarorlofs.
  • Jafnlaunavottun
  • Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.

Sérstaklega er leitað að fyrirtækjum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:  

  • Fyrirtækið hefur hlotið jafnlaunavottun
  • Stefna fyrirtækis í jafnréttismálum hefur skýran tilgang og mælanleg markmið og eftir henni er farið
  • Jafnréttismál eru þverlæg í heildarstefnu fyrirtækis
  • Jafnrétti hefur fest rætur og sýnt er fram á varanleika
  • Sýnt hefur verið fram á mælanlegan árangur af þeim markmiðum og aðgerðum sem fyrirtæki hefur sett sér
  • Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af jafnrétti
  • Leggja áherslu á góðan aðbúnað og vinnuskilyrði starfsfólks
  • Jafnréttissýnin er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki
  • Sýnt frumkvæði og nýsköpun sem stuðlar að jafnrétti kynjanna.
  • Leggja áherslu á samfélagslega ábyrgð og takast á við áskoranir nútímans, m.a. mannréttindi, loftslagsmál og fátækt

Vinsamlega fylltu út upplýsingar um fyrirtækið sem tilnefnt er og athugið að aðilar eru hvattir til að senda með hvers konar fylgigögn sem styrkt geta tilnefninguna.

Tilnefningum þarf að skila inn fyrir 1. nóvember 2020 á meðfylgjandi rafræna formi:

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins