Efnahagsmál - 

29. janúar 2003

Efla þarf samkeppnishæfni Evrópu (1)

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Efla þarf samkeppnishæfni Evrópu (1)

Grikkir hafa tekið við formennsku í ráðherraráði ESB. Á fundi með Costas Simitis, forsætisráðherra Grikklands, lýsti sendinefnd UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, áhyggjum af samkeppnishæfni álfunnar. Simitis var kynnt nýleg skýrsla UNICE þar sem samtökin minna á svonefnd Lissabon-markmið ESB frá árinu 2000, þar sem mörkuð var sú stefna að ESB yrði samkeppnishæfasta hagkerfi veraldar árið 2010. UNICE kalla eftir aðgerðum í því sambandi og benda m.a. á að hagvöxtur sé lítill í álfunni, fjárfestingar litlar og launakostnaður alltof hár. Jafnframt er bent á mun meiri hagvöxt í Bandaríkjunum. Lækka þarf kostnað og skattbyrði evrópskra fyrirtækja og draga úr opinberri reglubyrði, að því er fram kemur í skýrslu UNICE, þar sem gerðar eru ýmsar tillögur til úrbóta.

Sjá skýrslu á heimasíðu UNICE

UNICE eru Evrópusamtök 34 atvinnu- og iðnrekendasamtaka í 27 Evrópuríkjum. Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins eru meðal aðila að UNICE.

Samtök atvinnulífsins