Vinnumarkaður - 

29. nóvember 2011

Desemberuppbót 2011 greiðist eigi síðar en 15. desember

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbótin fyrir árið 2011 er kr. 48.800 fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn, en þeir fá greiddar kr. 55.400. Uppbótin greiðist fyrir fullt starf fyrir a.m.k. 45 unnar vikur hjá sama vinnuveitanda á árinu 2011, en er hlutfallsleg fyrir styttri starfstíma og minna starfshlutfall.

Auk þess greiðist sérstakt álag á desemberuppbót, kr. 15.000, að þessu sinni vegna ákvæða kjarasamninga frá 5. maí 2011.

Sjá nánar á Vinnumarkaðsvef SA

Samtök atvinnulífsins