Vinnumarkaður - 

19. september 2012

Dapurlegar niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Dapurlegar niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar

Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar fyrir ágúst síðastliðinn eru ekki uppörvandi. Fækkun íbúa á vinnualdri er áætluð 600 miðað við ágúst 2011 og vinnuaflsframboð landsmanna er talið hafa minnkað um 2.500. Sú fækkun skýrist annars vegar af fólksfækkuninni og fjölgun um 1.900 í hópi þeirra sem standa utan vinnumarkaðarins. Störfum fækkaði um 1.600 en þrátt fyrir það fækkar atvinnulausum um 900 vegna fjölgunar þeirra sem standa utan vinnumarkaðar.

Þegar litið er lengra aftur í tímann kemur í ljós að störf í ágúst hafa ekki verið færri síðan árið 2005. Loks hefur meðalvinnutími á viku styst um tæplega eina klukkustund. Fækkun starfandi fólks og stytting  vinnutíma samanvegin leiðir til þeirrar niðurstöðu að unnum heildarvinnustundum hafi fækkað um 5% í ágúst miðað við sama tíma í fyrra.

Fjöldi starfandi á Íslandi - smelltu til að stækka myndina.
Fjöldi starfandi á Íslandi - smelltu til að stækka myndina.

Svipuð mynd kemur í ljós þegar litið er á niðurstöður rannsóknarinnar um þróunina innan þessa árs. Árstíðaleiðréttar tölur sýna að íbúum á vinnualdri hafi fækkað um 4.200 milli janúar og ágúst og að vinnuaflsframboð landsmanna hafi minnkað um 3.600 manns. Á sama tíma hafi starfandi fólki fækkað um 3.200 og vinnutími styst um eina klukkustund. Fækkun starfandi og stytting vinnutíma  samanvegin sýnir að unnum heildarvinnustundum í landinu hafi fækkað um 4,3% frá ársbyrjun. Fjöldi atvinnulausra er svipaður sem og hlutfallslegt atvinnuleysi, eða 6,4% í ársbyrjun og 6,3% í ágúst.

Tengt efni:

Umfjöllun Stöðvar 2 - smelltu til að horfa

Umfjöllun Reykjavík síðdegis á Bylgjunni - smelltu til að hlusta

Samtök atvinnulífsins