Fréttir - 

17. september 2015

Dansinn dunar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Dansinn dunar

Kjarasamningarnir sem Samtök atvinnulífsins gerðu við helstu stéttarfélög á almennum vinnumarkaði í byrjun júní sl. fólu í sér miklar launahækkanir. En samningarnir voru gerðir til langs tíma og áttu að skapa fyrirtækjum fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi sínu. Vonast var til að samningarnir skiluðu launafólki auknum kaupmætti en tryggðu áfram stöðugleika í efnahagslífinu. Fyrirtækjunum var ætlað að halda aftur af verðhækkunum þótt ljóst væri að koma myndi til hækkana á ákveðnum sviðum.

Síðan hefur gerðardómur um laun háskólamanna og hjúkrunarfræðinga hleypt vinnumarkaðnum í uppnám með úrskurði um launahækkanir langt umfram það sem almennu samningarnir gera ráð fyrir. Launahækkanir sem fólust í samningum kennara eru einnig langt umfram það sem almennt launafólk býr við.

Myndin hér að neðan sýnir í raun á hvaða vegferð við erum. Það vilja allir rétta sinn hlut og troðast fram fyrir í röðinni í stað þess að leggja sitt af mörkum til að skapa aðstæður þar sem allir hagnast. Rétt er þó að hafa í huga að samningar við grunnskólakennara fólu í sér hagræðingu á móti hækkun launakostnaðar sem er ætlað að skila ávinningi til lengri tíma sem myndin sýnir ekki.

undefined

Á níunda áratugnum voru laun tuttugufölduð en kaupmáttur jókst á tíu árum um innan við eitt prósent. Við erum að leggja upp í sambærilegan leiðangur þar sem allir munu tapa, skuldir fólks og fyrirtækja stökkbreytast og atvinnutækifæri glatast.

Nú er ekki rétti tíminn til að leita sökudólga en það blasir við að þetta gengur ekki lengur. Jafnframt er ljóst að misræmi í launaþróun einstakra hópa getur ekki orðið grundvöllur að sátt á vinnumarkaði. Hækkanir launa hafa ekki tekið mið af stöðu efnahagslífsins, sveitarfélögin ráða ekki við þær eins og sjá má af afkomu þeirra og ríkið mun ekki gera það heldur.

Þetta er vond staða en undirstrikar að breyta verður því hvernig samið er um kaup og kjör á almennum og opinberum vinnumarkaði. Ef við höldum áfram á sömu braut mun það skila fólki og fyrirtækjum minna en engu og skerða lífskjör á Íslandi í stað þess að bæta þau.

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Leiðari fréttabréfsins Af vettvangi í september 2015.

Samtök atvinnulífsins