Fréttir - 

05. desember 2017

Bókhald á Litla Íslandi

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Bókhald á Litla Íslandi

Fræðslufundaröð Litla Íslands lýkur á föstudaginn 8. desember með opnum fundi um bókhald.

Fræðslufundaröð Litla Íslands lýkur á föstudaginn 8. desember með opnum fundi um bókhald.

Þetta er sjötti fundur Litla Íslands í nóvember og desember þar sem sjónum hefur verið beint að hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og því sem einkennir vel rekin fyrirtæki.

Upptökur frá fyrri fundum má nálgast á vef Litla Íslands.

Á föstudaginn mun Inga Jóna Óskarsdóttir, viðurkenndur bókari, ráðgjafi og eigandi hjá Bókhaldi og kennslu og formaður félags bókhaldsstofa, fjalla um lykilatriði í bókhaldi og mikilvægi bókhalds sem stjórntækis í rekstri.

Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 Reykjavík, í salnum Kviku á 1. hæð kl. 9-10.

Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundinn geta fylgst með þeim í beinni útsendingu á www.litlaisland.is þar sem er að finna margs konar fræðslu.

„Bókhald er áttaviti og mikilvægt stjórntæki," segir Inga Jóna.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér að neðan - allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

SKRÁNING

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins