Fréttir - 

18. nóvember 2015

Bein útsending frá stjórnmálaumræðum í Hörpu

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Bein útsending frá stjórnmálaumræðum í Hörpu

Samtök atvinnulífsins efna í dag til opins umræðufundar með stjórnmálaflokkunum á Alþingi um fjármál ríkisins, forgangsröðun fjármuna og hvað landsmenn fá fyrir skattana sína. Fundurinn hefst kl. 15 og standa umræðurnar yfir í 90 mínútur en þessa dagana er verið að ræða við Austurvöll um hvernig nærri 700 milljörðum verður varið á næsta ári.

undefined

Þátt taka Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Brynhildur S. Björnsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins og Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.

Fundurinn fer fram í Norðurljósasal Hörpu og geta áhugasamir skráð þátttöku hér.

Bein útsending frá fundinum hefst kl. 15 hér á vef SA en fundurinn er einnig sendur út á Vísi.

Samtök atvinnulífsins