Efnahagsmál - 

10. júlí 2008

Bautasteinn reistur Einari Oddi fyrir framlag til Þjóðarsáttar

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Laugardaginn 12. júlí munu Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands reisa bautastein á Flateyri til að heiðra minningu Einars Odds Kristjánssonar. SA og ASÍ vilja með þessum hætti halda á lofti framlagi Einars Odds til Þjóðarsáttarinnar árið 1990 en Einar Oddur átti ríkan þátt í að efla samskipti og samvinnu samtaka á vinnumarkaði. Steinninn verður afhjúpaður klukkan eitt að Sólbakka á Flateyri í Önundarfirði, heimabyggð Einars. Í kjölfarið fara fram tónleikar í Eyrarodda og kaffiveitingar að þeim loknum í hlaðinu á Sólbakka.