Fréttir - 

22. febrúar 2018

Auglýst eftir stjórnarmönnum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Auglýst eftir stjórnarmönnum

Samtök atvinnulífsins óska eftir hæfu fólki til að taka að sér stjórnarstörf í lífeyrissjóðum. Í auglýsingu samtakanna sem birt var í fjölmiðlum í dag kemur fram að samkvæmt kjarasamningi SA og ASÍ skipi samtökin helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðilanna.

Samtök atvinnulífsins óska eftir hæfu fólki til að taka að sér stjórnarstörf í lífeyrissjóðum. Í auglýsingu samtakanna sem birt var í fjölmiðlum í dag kemur fram að samkvæmt kjarasamningi SA og ASÍ skipi samtökin helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðilanna.

Samtök atvinnulífsins óska ár hvert eftir því að hæfir einstaklingar, sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA eða hagsmunasamtökum þeirra, gefi kost á sér til starfa í stjórnum lífeyrissjóða.

Leitað er eftir einstaklingum með fjölbreytta reynslu og þekkingu m.a. á lífeyrismálum, stjórnun, stefnumótun, áætlanagerð og reikningshaldi, lögfræðilegum málefnum og fjármálamarkaði. Úr þeim hópi sem gefur kost á sér til stjórnarstarfa verða tilnefndir þeir sem metnir eru hæfastir í ljósi þeirra eiginleika sem sóst er eftir í viðkomandi stjórn.

Sérstök hæfisnefnd fjallar um einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa. Nefndin leggur mat á þekkingu og reynslu umsækjenda með hliðsjón af þeim eiginleikum sem nauðsynlegt er að viðkomandi stjórn sem heild búi yfir. Að mati loknu leggur hæfisnefndin tillögu fyrir framkvæmdastjórn SA sem tilnefnir stjórnarmennina.

Umsóknir sendist í tölvupósti á stjornarseta@sa.is. Athugið að umsóknir frá fyrra ári gilda áfram og þarf ekki að endurnýja. Samtök atvinnulífsins hvetja konur jafnt sem karla til að sækja um.

Um er að ræða eftirfarandi lífeyrissjóði:

Birta lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Gildi - lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Rangæinga, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Stapi lífeyrissjóður

Samtök atvinnulífsins