Fréttir - 

29. september 2023

Atvinnulífið tók þátt í vinnunni við Loftslagsþolið Ísland

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Atvinnulífið tók þátt í vinnunni við Loftslagsþolið Ísland

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði haustið 2022 stýrihóp til að vinna tillögur fyrir gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum.

Stýrihópinn skipuðu Jens Garðar Helgason, formaður hópsins, Anna Hulda Ólafsdóttir, hjá Veðurstofu Íslands, Hrönn Hrafnsdóttir, hjá Reykjavíkurborg (tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga), Hugrún Elvarsdóttir, hjá Samtökum atvinnulífsins og Finnur Ricart Andrason, frá Ungum umhverfissinnum.

Hópurinn skilaði ráðherra tillögum sínum í gær en þær voru kynntar í streymi á vef Stjórnarráðsins, sjá hér: Stjórnarráðið | Loftslagsþolið Ísland: kynning á skýrslu starfshóps – streymi (stjornarradid.is)

Tillögur hópsins fela í sér:

  • Fjórar forgangsaðgerðir vegna aðlögunar til að vinna að samhliða áætlanagerð.
  • Tillögu að fyrstu Landsáætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum til fimmtán ára (2025-2039) og fyrstu aðgerðaáætlunar hennar fyrir árin 2025-2029.
  • Listi aðgerða og skipting aðlögunaraðgerða í flokka út frá fyrirliggjandi gögnum og samráðsferli 2022-2023.

Hópurinn var einnig ráðgefandi fyrir samráðsferli vegna undirbúnings Landsáætlunar, sem fól í sér þrettán vinnustofur með hagaðilum 2022-2023, en um 300 manns tóku þátt í vinnunni.

Fulltrúar úr helstu geirum atvinnulífsins tóku virkan þátt í vinnustofum vegna m.a. vatns og fráveitu, samgangna, mannvirkja, skipulagsmála, vátrygginga, fjármálafyrirtækja, orkumála, sjávarútvegs, fiskeldis og ferðaþjónustu.

Samtök atvinnulífsins þakka því öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem lögðu hönd á plóg í vinnustofum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytins sérstaklega fyrir þeirra mikilvæga framlag til þessa mikilvæga viðfangsefnis.

Aðlögunaraðgerðirnar eru nauðsynlegar vegna hlýnunar loftslags og súrnunar sjávar og því er mikilvægt að horfa til loftslagsþols byggðar, innviða, atvinnuvega o.fl. þátta. Horfa þarf á stóru myndina þegar kemur að loftslagsbreytingum og heildrænt skipulag þarf til að takast á við þetta verkefni sem við stöndum öll frammi fyrir.

Stýrihópurinn undirstrikaði mikilvægi þess að horft sé til samlegðaráhrifa mótvægisaðgerða og aðlögunaraðgerða og að skipuð sé ein stýrinefnd sem falin er ábyrgð og umboð til gerðar beggja áætlana ráðuneytisins vegna loftslagsaðgerða, þ.e. aðgerðaráætlun í loftslagsmálun og landsáætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum.

Skýrslan í heild sinni: Loftslagsþolið Ísland (stjornarradid.is)

Þó hér sé lögð fram samantekt á tillögum að forgangsaðgerðum, þá er rétt að benda á þann auð sem býr í samantektunum frá hverri vinnustofu á vefnum þar sem fjöldi sérfræðinga innan úr atvinnulífinu, ráðuneytum, ríkisstofnunum, sveitarfélögum og félagsamtökum tók þátt og lagði sig fram um að finna leiðir til að snúa vörn í sókn í glímunni við áhrif loftslagsbreytinga, á grunni sinnar sérþekkingar.

Stýrihópur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tekur nú við boltanum og mun nýta þessa samantekt við mótun tillögu til ráðherra um skipulag og efnistök fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun Íslands að loftslagsbreytingum.

Samtök atvinnulífsins