Efnahagsmál - 

28. apríl 2011

Atvinnuleysið minnkar ef atvinnuleiðin verður farin

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Atvinnuleysið minnkar ef atvinnuleiðin verður farin

Samtök atvinnulífsins spá því að atvinnuleysið verði komið niður í 4,5% árið 2013 ef atvinnuleiðin verður farin og gerðir kjarasamningar til þriggja ára en í dag eru um 15 þúsund manns án vinnu, atvinnuleysið mælist 8,6% skv. Vinnumálastofnun og langtímaatvinnuleysi er á hraðri uppleið. "Við erum á fullri ferð að reyna að bjarga atvinnuleiðinni og teljum það okkar skyldu að reyna algjörlega til þrautar hvort ekki er hægt að fara þá leið. Það er það besta og skynsamlegasta í stöðunni að snúa bökum saman og reyna að komast út úr kreppunni," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í Morgunblaðinu í dag.

"Okkur finnst mjög hrapalegt ef við þurfum að hrökkva frá þessu. Þær launahækkanir sem við erum að taka á okkur ef atvinnuleiðin verður farin og byggt verður á þriggja ára samningi, eru mjög dýrar fyrir atvinnulífið, sérstaklega fyrir þann hluta þess, sem er með fólk með lægri tekjur í vinnu. Það er útilokað að hægt verði að standa undir þessum launahækkunum nema við séum á leið út úr kreppunni. Þess vegna erum við að leggja þetta ofurkapp á að þessi leið verði farin. Allt annað er neyðarbrauð."

Verði atvinnuleiðin farin og kjarasamningar gerðir til þriggja ára myndi launakostnaður atvinnulífsins í heild hækka um 12% að sögn Vilhjálms en mun meira hjá fyrirtækjum sem sem eru með margt lágtekjufólki í vinnu. Auk þess myndi lágmarkstekjutryggingin hækka um rúm 20%.

Vilhjálmur bendir á að þetta séu miklar hækkanir sem verði væntanlega umtalsvert umfram verðbólgu á þessu þriggja ára tímabili en aðal kaupmáttaráhrifin verði vegna aukinnar vinnu, minna atvinnuleysis, hærri starfshlutfalla og meiri yfirvinnu. Auk þess myndu launalækkanir sem fyrirtæki hafa þurft að grípa til ganga til baka þegar fyrirtækjunum færi að ganga betur.

"Það er því eftir miklu að slægjast að fara atvinnuleiðina."

Í Morgunblaðinu  í dag kemur fram að forystumenn SA hafi átt óformleg samtöl seinustu daga við ráðherra og fulltrúa ríkisstjórnarinnar. Samtök atvinnulífsins leggja mikla áherslu á að gengið verði frá samkomulagi um kjarasamninga til þriggja ára en enn á  eftir að ná lendingu í sjávarútvegsmálunum. "Staðan er einfaldlega sú að það er óhugsandi að Ísland komist upp úr kreppunni ef helsta útflutningsgreinin er í fullkominni óvissu um sína rekstrarstöðu og framtíð," segir Vilhjálmur. "Við höfum verið að velta upp ýmsum möguleikum svo hægt sé að ná sátt um sjávarútveginn," segir hann. Vilhjálmur segist telja að ákveðinn vilji sé til staðar hjá fjármálaráðherra að leysa þetta mál, "en það þarf meiri vilja og frá fleirum," segir hann.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag og á mbl.is. Einnig var fjallað um stöðu kjaramála í Kastljósi RÚV í gærkvöldi þar sem rætt var við Vilhjálm Egilsson og Guðmund Gunnarsson, formann Rafiðnaðarsambands Íslands. Hægt er að horfa á umræðuna hér að neðan:

Lesa frétt á mbl.is

Horfa á umræður í Kastljósi

Samtök atvinnulífsins