Vinnumarkaður - 

22. apríl 2019

Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Atkvæðagreiðsla um kjarasamninga

Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninga við verkafólk og verslunarmenn fyrir tímabilið 2019 - 2022 sem skrifað var undir 3. apríl stendur yfir meðal aðildarfyrirtækja SA. Hægt er að greiða atkvæði til kl. 11 miðvikudaginn 24. apríl.

Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninga við verkafólk og verslunarmenn fyrir tímabilið 2019 - 2022 sem skrifað var undir 3. apríl stendur yfir meðal aðildarfyrirtækja SA. Hægt er að greiða atkvæði til kl. 11 miðvikudaginn 24. apríl.

Atkvæðagreiðslan er í samræmi við samþykktir samtakanna, en í þeim segir að heildarkjarasamningar og stefnumarkandi samningar skuli bornir undir atkvæði félagsmanna í leynilegri atkvæðagreiðslu.

  • Framkvæmd atkvæðagreiðslunnar er í höndum Outcome-kannana. Fyrirspurnir og óskir um aðstoð sendist í tölvupósti á konnun@outcomekannanir.is.
  • Slóð á atkvæðaseðil ásamt lykilorði til að taka þátt hefur verið send til aðildarfyrirtækja frá konnudur@outcomesurveys.com.
  • Almennar fyrirspurnir atkvæðagreiðslunnar má senda á Arndísi Arnardóttur skrifstofustjóra SA á arndis@sa.is.

Lífskjarasamningurinn 2019-2022 er yfirskrift þeirra fjölmörgu samninga og yfirgripsmiklu aðgerða sem aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa sammælst um næstu árin. Kynningu samningsins má nálgast á vef SA ásamt boðuðum aðgerðum ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á vinnumarkaðsvef SA er einnig að finna ítarlegar upplýsingar um nýja samninga SA og SGS, Eflingar, VR og LÍV.

Kjarasamningar 2019-2022 á vinnumarkaðsvef SA

Lífskjarasamningurinn 2019-2022 – umfjöllun á vef SA

Hér að neðan í Sjónvarpi atvinnulífsins má einnig sjá stutta kynningu Halldórs Benjamín Þorbergssonar á helstu atriðum Lífskjarasamningsins.

Glærukynning framkvæmdastjóra SA í heild með viðaukum og dæmum (PDF)

Samtök atvinnulífsins