Efnahagsmál - 

13. júní 2013

Átak gegn svartri atvinnustarfsemi

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Átak gegn svartri atvinnustarfsemi

Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Ríkisskattstjóri munu í sumar taka höndum saman á nýjan leik og ráðast í sérstakt átak til þess að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli. Fulltrúar aðilanna þriggja munu heimsækja vinnustaði, kanna aðstæður, veita ráðgjöf og fræðslu um viðeigandi reglur og lagaramma og hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að gera nauðsynlegar úrbætur ef þurfa þykir. Yfirskrift átaksins er Leggur þú þitt af mörkum?

LAFMÖRKUMSvört atvinnustarfsemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum eru skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni. Hún eykur skattbyrði þeirra sem fara að settum reglum og kemur í veg fyrir að fyrirtæki geti keppt á jafnréttisgrunni. Það er ósanngjarnt að láta aðra borga reikningana sína.

Athyglinni verður sérstaklega beint að litlum og meðalstórum fyrirtækjum í ýmsum atvinnugreinum og nauðsynlegra úrbóta og leiðréttingar gjalda krafist þar sem við á. SA, ASÍ og RSK hvetja forráðamenn atvinnurekstrar í landinu til að hafa tekjuskráningu sína í lagi og alla starfsmenn skráða. Jafnframt að nota vinnuskilríki þar sem það á við og fara að lögum um færslu bókhalds og skil á staðgreiðslu, virðisaukaskatti og öðrum lögboðnum gjöldum.

Samtök atvinnulífsins