1 MIN
Ársfundur Landsmenntar: Mikilvægi sí- og endurmenntunar í brennidepli
Þann 4. júní var ársfundur Landsmenntar starfsmenntasjóðs haldinn í Húsi atvinnulífsins. Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni. Helstu verkefni Landsmenntar eru að sinna stuðningsverkefnum og þróunar-og hvatningaraðgerðum í starfsmenntun. Sjóðnum er ætlað að styrkja rekstur námskeiða og stuðla að nýjungum í námsefnisgerð ásamt því að veita einstaklingum og fyrirtækjum beina styrki vegna sí-og endurmenntunar.
Fyrir utan hefðbundin aðalfundarstörf héldu Aðalsteinn Árni Baldursson stjórnarformaður Landsmenntar ávarp og Maj-Britt Hjördís Briem stjórnarkona í Landsmennt erindi um mikilvægi starfs, sí- og endurmenntunar. Arnar Sigurmundsson varaformaður stjórnar Landsmenntar bar saman lykiltölur helstu starfsmenntasjóða á almennum markaði og Solveig Ólöf Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landsmenntar og Lilja Baldursdóttir þjónustufulltrúi röktu starfsemi Landsmenntar á liðnu ári. Ingimar Knútsson starfsmaður hjá PCC Bakka fjallaði um mikilvægi styrkja Landsmenntar á leið hans til frekari menntunar. Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir stjórnarkona í Landsmennt stýrði fundi.
Arnar Sigurmundsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir sem setið hafa í stjórn Landsmenntar fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins um áratuga skeið stíga nú úr stjórn og voru þeim færðar kærar þakkir og blóm. Samtök atvinnulífsins þakka þeim kærlega fyrir frábær störf í þágu starfsmenntunar á íslenskum vinnumarkaði.
Inn í stjórn Landsmenntar koma í þeirra stað Lilja Björg Arngrímsdóttir mannauðsstjóri hjá Vinnslustöðinni og Ólína Laxdal hótelstjóri á Hótel Hildibrandi.

Arnar Sigurmundsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir sem setið hafa í stjórn Landsmenntar fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins um áratuga skeið stíga nú úr stjórn og voru þeim færðar kærar þakkir og blóm.