Efnahagsmál - 

29. janúar 2013

Árlegur ávinningur af 15.000 nýjum störfum 60 milljarðar króna

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Árlegur ávinningur af 15.000 nýjum störfum 60 milljarðar króna

Til að Íslendingar njóti sambærilegra lífskjara og nágrannaþjóðir okkar þarf árlegur hagvöxtur á næstu árum að vera yfir 3,5% og verðbólga lág. Það er til mikils að vinna því ef það tekst að skapa skapa 15.000 ný störf á næstu fimm árum nemur árlegur ávinningur samfélagsins um 60 milljörðum króna.

Þetta er ekki fráleitt markmið því starfandi fólki fækkaði um 10.000 milli áranna 2008 og 2012. Í lok desember 2012 voru 9.500 manns á atvinnuleysisskrá, þar af höfðu 4.800 verið án atvinnu í meira en 6 mánuði og 3.300 í meira en eitt ár. Skráð atvinnuleysi á öllu árinu 2012 var 5,8% af mannafla og svaraði til þess að 9.500 manns hefðu óskað eftir fullu starfi en ekki fengið.

Kemur út 31. janúar!Á næstu árum þarf að skapa a.m.k. 10 þúsund ný störf svo að unnt verði að koma á fullri atvinnu og mæta vaxandi fjölda á vinnumarkaði. Enn fleiri störf þurfa að verða til svo unnt verði að bjóða hluta þeirra 9.000 íbúa atvinnu sem fluttu brott af landinu umfram aðflutta á árunum 2009-2012. Ef það tekst að fjölga störfum um 15 þúsund á næstu árum mun fjárhagslegur ávinningur hins opinbera og efnahagslífsins alls nema nálægt 60 milljörðum króna árlega.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju tímariti SA sem kemur út á fimmtudaginn 31. janúar og verður kynnt á morgunverðarfundi SA í Hörpu. Fjölmargir stjórnendur munu stíga þar á stokk og benda á leiðir til að skapa fleiri og betri störf á Íslandi á næstu árum. Mikill áhugi er á fundinum og skráning í fullum gangi. Fundurinn er öllum opinn.

Sjá nánari upplýsingar hér

Samtök atvinnulífsins