Efnahagsmál - 

03. maí 2011

Aftur sest að samningaborðinu (1)

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Aftur sest að samningaborðinu (1)

Stjórn Samtaka atvinnulífsins ákvað á fundi nú í hádeginu að láta enn á ný reyna á vilja ASÍ og landssambanda þess til að ljúka gerð þriggja ára kjarasamnings á svipuðum forsendum og áður. SA munu því hitta viðsemjendur sína á fundi í dag kl. 15 hjá ríkissáttasemjara til að freista þess að ljúka gerð nýs kjarasamnings á almennum vinnumarkaði. Framkvæmdastjórn SA lýsti því yfir sl. föstudag að samtökin telji mikilvægt að skapa fyrirtækjum landsins starfsöryggi og frið.

Undanfarna mánuði hafa Samtök atvinnulífsins og ASÍ og landssamböndin unnið að gerð þriggja ára kjarasamnings sem byggir á atvinnuleiðinni. Með henni er sköpuð ákveðin framtíðarsýn þar sem áherslan er lögð á hagvöxt, öruggt og tryggt starfsumhverfi fyrir allar atvinnugreinar, aukningu kaupmáttar og að draga úr atvinnuleysi. Til þess að ná þessu fram var aðkoma ríkisstjórnarinnar nauðsynleg.

Þegar viðræðum um kjarasamning var slegið á frest fyrir páska lá fyrir grunnur að kjarasamningi aðila en út af stóðu nokkur mál sem ræða þurfti nánar við ríkisstjórnina. Á fimmtudagskvöld í síðustu viku bárust ný drög að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana. Að mati SA var þar komið að nokkru til móts við sjónarmið samtakanna um auknar framkvæmdir í hagkerfinu auk þess sem sett var fram ákveðin bókun um meðferð frumvarps um sjávarútvegsmál. Ljóst er að ríkisstjórnin er óbundin af yfirlýsingunni náist ekki kjarasamningar til þriggja ára.

SA telja að atvinnuleiðin sé best til þess fallin að ná þjóðinni út úr kreppunni og skapa grundvöll að nýrri sókn í atvinnumálum, auknum kaupmætti og því að unnt verði að draga úr atvinnuleysinu.

Samtök atvinnulífsins