Fréttir - 

09. apríl 2019

Aðalfundur SA í dag kl. 12

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Aðalfundur SA í dag kl. 12

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn í dag þriðjudaginn 9. apríl 2019. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður m.a. frá kjöri formanns Samtaka atvinnulífsins og stjórnar SA 2019-2020. Einnig verður farið yfir helstu atriði nýs Lífskjarasamnings 2019-2022.

Aðalfundurinn er á Grand Hótel Reykjavík í salnum Háteigi kl. 12-14.

Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka.

Ársfundur atvinnulífsins 2019 sem er öllum opinn og hefur verið haldinn í kjölfar aðalfundar, verður að þessu sinni haldinn fimmtudaginn 17. október kl. 14-16 í Hörpu. Þá verða liðin 20 ár frá stofnun Samtaka atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins