12. mars 2024

Verkbann SA í kjaradeilu við VR

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Verkbann SA í kjaradeilu við VR

Í ljósi atkvæðagreiðslu VR um boðun verkfallsaðgerða fyrir farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefur stjórn Samtaka atvinnulífsins samþykkt einróma að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu um verkbann á félagsmenn í VR. Verkbann mun, ef til þess kemur, ná til alls skrifstofufólks sem aðild á að VR og fellur undir almennan kjarasamning SA og VR.

Forysta VR hóf atkvæðagreiðslu um boðun verkfallsaðgerða fyrir farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Fyrstu lotu verkfalls er ætlað að standa í þrjá sólarhringa, frá kl. 00:01 föstudaginn 22. mars til kl. 23:59 sunnudaginn 24. mars. Aðgerðunum virðist ætlað að brjóta þá launastefnu sem var nýverið mörkuð með Stöðugleikasamningnum, launastefnu sem forysta VR tók sjálf þátt í að móta.

„Við höfum gengið frá Stöðugleikasamningi við öll stærstu stéttarfélög og landssambönd á almennum vinnumarkaði. Stöðugleikasamningurinn er fjögurra ára kjarasamningur sem tryggir launafólki 3,25-3,5% árlegar launahækkanir með 23,750 kr. lágmarki. Markmið samningsins eru að ná niður verðbólgu og stuðla að því að skilyrði skapist til vaxtalækkana en þeim markmiðum stendur ógn af boðuðum skæruverkföllum í tengslum við sérkjarasamning sem leiðir af aðalkjarasamningi VR.“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA.

Það er samhverfa í vinnulöggjöfinni varðandi vinnustöðvanir. Verkbann er úrræði atvinnurekanda í vinnudeilum sem Samtök atvinnulífsins eru óhrædd við að beita. Í stað þess að forysta VR lami starfsemi tiltekinna fyrirtækja og atvinnugreina með verkföllum fárra félagsmanna munu SA með verkbanni auka þrýsting á VR að ljúka yfirstandandi kjaraviðræðum. Verkbann er sambærilegt verkfalli og þýðir að félagsfólk VR mætir ekki til starfa og launagreiðslur falla niður.

„Tilgangur boðaðs verkbanns af hálfu SA er að þrýsta á forystu VR að ljúka yfirstandandi kjaraviðræðum í takt við þá stefnu sem þegar hefur verið mörkuð. Tilgangur verkbannsins er að verja tækifærið til að ná efnahagslegum stöðugleika.“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA.

Atkvæðagreiðsla hefst um verkbann meðal allra aðildarfyrirtækja SA 12. mars kl. 12:00 og upplýsingafundur fyrir félagsmenn SA hefst í kjölfarið kl. 14:00 . Atkvæðagreiðslan stendur til 14. mars kl. 14:00. Verði verkbann samþykkt mun það taka gildi föstudaginn 22. mars kl. 00:01, þ.e. á sama tíma og verkfalli VR er ætlað að hefjast.

Veittar verða undanþágur frá verkbanni vegna nauðsynlegrar grunnþjónustu.

Fresti forysta VR boðuðum verkföllum munu Samtök atvinnulífsins að sama skapi fresta verkbannsaðgerðum.

Hér má kynna sér allt um verkbann og hvað það þýðir

Samtök atvinnulífsins