Samkeppnishæfni - 

04. janúar 2013

Stjórn Samorku: Tillaga um rammaáætlun óásættanleg

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Stjórn Samorku: Tillaga um rammaáætlun óásættanleg

Stjórn Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 3. janúar:

Stjórn Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 3. janúar:

"Atkvæði verða greidd um tillögu til þingsályktunar um vernd og nýtingu landsvæða (rammaáætlun) mánudaginn 14. janúar nk., skv. starfsáætlun Alþingis. Stjórn Samorku telur fyrirliggjandi tillögu óásættanlega. Tillagan víkur í veigamiklum atriðum frá faglegri niðurstöðu verkefnisstjórnar, sem vera átti grundvöllur sáttar um málaflokkinn. Fjöldi orkukosta sem verkefnisstjórnin raðaði ofarlega út frá sjónarhorni orkunýtingar eru í tillögunni ýmist settir í biðflokk eða verndarflokk. Þar á meðal eru ýmsir hagkvæmustu og best rannsökuðu kostirnir, kostir sem farið hafa í gegnum umhverfismat og eru jafnvel þegar komnir á skipulag í viðkomandi sveitarfélögum.

Ljóst er að engin sátt getur orðið um þessa niðurstöðu, sem varpar fyrir róða áralangri faglegri vinnu verkefnisstjórnar. Samþykkt tillögunnar, óbreyttrar, örfáum mánuðum fyrir þingkosningar mun á engan hátt eyða óvissu að mati Samorku."

Vefur Samorku

Samtök atvinnulífsins