Menntamál - 

09. desember 2010

Starfsafl fékk Starfsmenntaverðlaunin 2010

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Starfsafl fékk Starfsmenntaverðlaunin 2010

Starfsafl, starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins, fékk í gær Starfsmenntaverðlaunin í flokki félagasamtaka og einstaklinga fyrir verkefnið Fræðslustjóri að láni. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.

Starfsafl, starfsmenntasjóður Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins,  fékk í gær Starfsmenntaverðlaunin í flokki  félagasamtaka og einstaklinga fyrir verkefnið Fræðslustjóri að láni. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem vinna að framúrskarandi verkefnum í fræðslumálum og starfsmenntun.

Veitt voru fern verðlaun, verðlaun Starfsafls og fyrirtækisins Kaffitárs tengjast, því Kaffitár fékk verðlaunin sem fulltrúi fyrirtækja sem nýta sér  fræðslustjórann. Þá var Reykjavíkurborg  verðlaunuð fyrir Íslenskuskólann sem nær 200 af rúmlega 700 starfsmönnum borgarinnar sem eru erlendir að uppruna hafa sótt og Landbúnaðarskólinn Íslands og endurmenntunardeild hans fengu verðlaun fyrir Grænni skóga sem er yfirgripsmikið nám í skógrækt sem boðið er í öllum landshlutum. Forseti Íslands afhenti starfsmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn í gær.

Starfsmenntaverðlaunin 2010

Fræðslustjóri að láni er hugmynd sem er fengin  víða að og aðlöguð að einkafyrirtækjum sem ráða yfir 75- 80% vinnuafls Íslendinga. Fræðslustjórinn kemur inn í fyrirtæki, á kostnað fræðslusjóðanna, eins eða fleiri, fer yfir fræðsluþarfir fyrirtækisins, samhæfir við viðskipta- og mannauðsstefnu og býr til símenntunaráætlun með hjálp rýnihópa sem eru mannaðir starfsmönnum sem eru í margs konar störfum innan fyrirtækis . Þannig er búin til stefna sem fyrirtækið á og gerir að sinni.

Með Fræðslustjóraverkefninu er boðið upp á klæðskerasaumaða fræðslu sem þörf er fyrir og nýtist bæði starfsmönnum og fyrirtækjunum. Nú hafa 40 fyrirtæki, með um 4000 starfsmenn, virka símenntun með hjálp þessa verkefnis og áhuginn vex stöðugt.  Þessi fyrirtæki - og mörg fleiri - eru virkir námsstaðir. Fyrirtæki eru öflugur vettvangur náms og tímabært að undirstrika það og hlúa að þeirri hugsun.  Fræðslustjóraverkefnið er samvinnuverkefni við systursjóði Starfsafls , Landsmennt og Starfsmenntasjóð verslunar og skrifstofufólks. Fleiri fræðslusjóðir m.a. iðnaðarmanna hafa lýst yfir áhuga á þátttöku. Þá hefur verkefnið  vakið athygli út fyrir landsteinanna eins og margar aðrar lausnir fullorðinsfræðslunnar í óformlega kerfinu hér. 

Við afhendinguna í gær sagði Sveinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Starfsafls m.a.

 "Aðilar vinnumarkaðarins á Íslandi hafa borið gæfu, áræði og metnað til að taka höndum saman í fræðslumálum vinnandi fólks. Við erum öfunduð af þessari samvinnu erlendis en hún er engan veginn fyrirfram sjálfgefin. Án þessarar samvinnu værum við mikið fátækari að lausnum. Við þurfum lausnir af hvers kyns tagi í okkar erfiða árferði. Með samvinnu aðila vinnumarkaðarins í farteskinu getum við horft með óbilandi bjartsýni fram á veginn.

Eigendur Starfsafls eru  Samtök atvinnulífsins, Efling stéttarfélag, Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og  nárgrennis. Guðrún Eyjólfsdóttir verkefnastjóri hjá SA  er formaður stjórnar Starfsafls.

VEFUR STARFSAFLS

Samtök atvinnulífsins