26. febrúar 2024

Óskað eftir tilnefningum í stjórnir lífeyrissjóða

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Óskað eftir tilnefningum í stjórnir lífeyrissjóða

Óskað eftir hæfu fólki

Samtök atvinnulífsins óska eftir hæfu fólki til að taka að sér stjórnarstörf í lífeyrissjóðum.

Samkvæmt kjarasamningi SA og ASÍ skipa samtökin helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðila og er framkvæmdastjórn SA falin tilnefning stjórnarmanna.

Samtök atvinnulífsins óska ár hvert eftir því að hæfir einstaklingar, sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum SA eða hagsmunasamtökum þeirra, gefi kost á sér til starfa í stjórnum lífeyrissjóða.

Leitað er eftir einstaklingum með fjölbreytta reynslu og þekkingu m.a. á lífeyrismálum, stjórnun, stefnumótun, áætlanagerð og reikningshaldi, lögfræðilegum málefnum og fjármálamarkaði. Úr þeim hópi sem gefur kost á sér til stjórnarstarfa verða tilnefndir þeir sem metnir eru hæfastir í ljósi þeirra eiginleika sem sóst er eftir í viðkomandi stjórn.

Sérstök hæfnisnefnd fjallar um einstaklinga sem gefið hafa kost á sér til stjórnarstarfa. Nefndin leggur mat á þekkingu og reynslu umsækjenda með hliðsjón af þeim eiginleikum sem nauðsynlegt er að viðkomandi stjórn sem heild búi yfir. Að mati loknu leggur hæfisnefndin tillögu fyrir framkvæmdastjórn SA.

Um er að ræða eftirfarandi lífeyrissjóði: Birta lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Gildi - lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Rangæinga, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og Stapi lífeyrissjóður

Umsóknir með kynningarbréfi og ferilskrá sendist í tölvupósti á stjornarseta@sa.is . Athugið að umsóknir frá fyrra ári gilda áfram og þarf ekki að endurnýja. Samtök atvinnulífsins hvetja öll til að sækja um.

Samtök atvinnulífsins