Fréttir - 

05. janúar 2023

Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja kl. 09:00

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja kl. 09:00

Menntamorgnar hefja göngu sína á ný

Menntamorgnar atvinnulífsins fara af stað aftur núna kl. 09:00 - 10:00 og er fyrsti morgunfundur nýs árs tileinkaður metnaðarfullu fræðslustarfi fyrirtækja. Menntamorgnar eru samstarfsverkefni SA og aðildarsamtaka.

Smellið hér til að horfa á streymið.

Fundurinn ber yfirskriftina Metnaðarfullt fræðslustarf fyrirtækja - lykill að framsæknu atvinnulífi.

Dagskrá

  • Skrautfjöður eða strategískt markmið? Allt um tilnefningar til menntaverðlauna atvinnulífsins – Ásdís Eir Símonardóttir mannauðsstjóri Lucinity og forseti Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi
  • Menntasprotinn okkar – kærkomin viðurkenning og hvatning - Knútur Rafn Ármann eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima
  • Menntaverðlaunin komin í hús – við settum okkur markmið – Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa
    Fundarstjóri er Kristín Lúðvíksdóttir, sérfræðingur hjá SFF.

Menntamorgunninn er hugsaður sem hvatning fyrir fyrirtæki og upptaktur að Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram 14. febrúar nk.

Opið er fyrir tilnefningar til Menntaverðlauna atvinnulífsins og hvetjum við öll fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin að tilnefna sig hér.

Samtök atvinnulífsins