1 MIN
Ítarlegur upplýsingafundur með sérfræðingum SA
Upplýsingafundur um Stöðugleikasamninginn verður haldinn fyrir aðildarfyrirtæki SA miðvikudaginn 13. mars kl. 11:00. Þar munu sérfræðingar Samtaka atvinnulífsins fara yfir helstu atriði samningsins og svara spurningum. Fundurinn er einungis ætlaður félagsmönnum og fer fram á Zoom.
Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst í beinu framhaldi, kl. 12:00.
Hér má horfa á upptöku af fundinum á læstu svæði fyrir aðildarfyrirtæki SA