Fréttir - 

01. desember 2015

300 stjórnendur skora á Alþingi að lækka tryggingagjaldið

Vinnumarkaðsmál

Vinnumarkaðsmál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

300 stjórnendur skora á Alþingi að lækka tryggingagjaldið

Rúmlega 300 stjórnendur úr atvinnulífinu skora í dag á Alþingi að lækka tryggingagjaldið. Í áskoruninni kemur fram að það gangi vel í atvinnulífinu á mörgum sviðum og atvinnuleysi hafi minnkað hratt. Þrátt fyrir það sé tryggingagjald sem rennur m.a. til greiðslu atvinnuleysisbóta enn í hæstu hæðum. Árlegt gjald er um 20 til 25 milljörðum króna hærra en það ætti að vera.

Engin áform virðast um að lækka tryggingagjaldið árið 2016 þrátt fyrir að atvinnuleysi sé hverfandi. Það hefur verið 3% síðustu 12 mánuði og fer enn minnkandi, en tryggingagjaldið er svipað og þegar atvinnuleysi var 8-9% á árunum 2009-2010. Þessu mótmæla stjórnendur fjölbreyttra fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum út um allt land og hvetja Alþingi til að láta verkin tala og lækka gjaldið. Fram hefur ítrekað komið á undanförnum tveimur árum hjá fulltrúum allra flokka að rétt væri að lækka gjaldið.

Áskorunin er birt í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í dag og má nálgast hérna.

Þar er bent á að tryggingagjaldið komi harðast niður á litlum og meðalstórum fyrirtækjum þar sem flest ný störf verða til. Fyrirtæki sem er með tíu starfsmenn í vinnu greiðir í raun laun þess ellefta en hann fær ekki að koma í vinnuna.  Hátt tryggingagjald minnkar getu fyrirtækja til að hækka laun eða ráða fleiri í vinnu og takmarkar svigrúm fyrirtækja til að stunda rannsóknir, þróun og nýsköpun.

Samtök atvinnulífsins