Vinnumarkaðsvefur

mest lesið á vefnum

Dagvinna og deilitölur

Kjarasamningar

Kaupgjaldsskrá SA

Ráðningarsamningar

Greinar og tíðindi

Fréttir22.04.2026

Gagnrýna umfangsmikið eftirlit stjórnvalda

Lesa meira

Fréttir17.04.2026

SA leggjast gegn varanlegri heimild um nýtingu séreignarsparnaðar

Lesa meira

Fréttir17.04.2026

Telja gjaldtöku og leyfiskerfi geta skert samkeppnishæfni

Lesa meira
Sjá allar greinar og tíðindi

Starfsmannamál – myndbönd

Sjá öll myndbönd

hvað er á döfinni?

13. maí 2026

13. maí

kl. 11:00

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2026

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 13. maí næstkomandi klukkan 11:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.  Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður meðal annars frá kjöri stjórnar SA 2026-2027.  Aðildarsamtök SA gera tillögu til kjörstjórnar um tuttugu stjórnarmenn en kjörstjórn leitar einnig eftir tillögum aðildarfyrirtækja um einstaklinga til setu í stjórn. Formaður SA var kjörinn á síðasta ári til tveggja ára. Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka. Skráning hér Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fara fulltrúar í fulltrúaráði með atkvæðarétt.  Dagskrá aðalfundar:  1. Skýrsla stjórnar fyrir næstliðið starfsár  2. Reikningar samtakanna fyrir næstliðið reikningsár  3. Kjöri stjórnar lýst  4. Kosning löggilts endurskoðanda  5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál 

Sjá allt á döfinni

Algengar spurningar

Get ég fengið aðstoð frá lögmanni með starfsmannamál?

Já, ef þú ert félagsmaður getur þú fengið lögfræðilega aðstoð við túlkun kjarasamninga og stjórn starfsmannamála, sem hafa að gera með ráðningar, uppsagnir, vinnutíma, veikindarétt, orlof og fleira. Þú getur sent tölvupóst á sa@sa.is, hringt í síma 591 0000 eða haft beint samband við þinn tengilið á vinnumarkaðssviði SA.

Hvar sæki ég um félagsaðild?

Hér getur þú sótt um aðild að SA og aðildarsamtökum okkar (Samorka, SVÞ, SFS, SFF, SAF og SI) eftir því sem við á. Ef þú vilt kynna þér betur aðild að SA hvetjum við þig til að bóka upplýsingafund með okkur hér.

Hvar finn ég ráðningarsamninga?

Undir Eyðublöð hér á vefnum geta félagsmenn nálgast fjölbreytt form af ráðningarsamningum ásamt fylgiskjölum bæði á íslensku og ensku. Félagsmenn geta einnig fengið aðstoð við gerð ráðningarsamninga hjá lögmönnum vinnumarkaðssviðs SA.

Þarf ég að semja um fjarvinnu?

Já, ef það er samkomulag um að starfsmaður sinni reglulega eða alfarið utan starfstöðvar félagsins, t.d. á heimili sínu þarf að semja um fjarvinnu. Félagsmenn SA geta nálgast nánari umfjöllun um fjarvinnu hér á vinnumarkaðsvefnum auk sniðmáts að samkomulagi um fjarvinnu á íslensku og ensku undir „Eyðublöð“.

Hvernig get ég komið upplýsingum á framfæri til ykkar?

Það er keppikefli Samtaka atvinnulífsins að skapa fyrirtækjum landsins sem best umhverfi til þess að vaxa og dafna. Við tökum því öllum ábendingum fagnandi, hvort sem það lítur að innra starfi okkar eða hagsmunamáli fyrir þitt fyrirtæki. Þér er velkomið að hafa samband í 591 0000 eða senda póst á sa@sa.is.