dags
15. maí 2024
tími
kl. 12:00 - 14:00
staður
Borgartún 35
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 15. maí næstkomandi klukkan 12:00.
Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður meðal annars frá kjöri formanns Samtaka atvinnulífsins og stjórnar SA 2024-2025.
Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka.
Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fara fulltrúar í fulltrúaráði með atkvæðarétt.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar fyrir næstliðið starfsár
2. Reikningar samtakanna fyrir næstliðið reikningsár
3. Kjöri formanns lýst
4. Kjöri stjórnar lýst
5. Kosning löggilts endurskoðanda
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál